Sumarið 2025 hóf Búseti byggingu fimm raðhúsa við Axlarás 16 - 22 í Hafnarfirði. Hafnarfjarðarbær úthlutaði félaginu byggingarreit undir raðhúsin á svæði sem ber heitið Ásland 4.
Húsin eru skemmtilega hönnuð á einni hæð og er hvert hús um 150 m². Ístak hefur séð um byggingu húsanna fyrir Búseta og eru það M11 arkitektar sem eiga heiðurinn af hönnuninni.
Framkvæmdum miðar vel og er gert ráð fyrir að húsin verði til afhendingar sumarið 2026.