Axlaras-Husamynd1

Axlarás 16 - 22

Fimm raðhús á einni hæði við Axlarás 16-22 í Hafnarfirði

Búseti byggir við Axlarás

Sumarið 2025 hóf Búseti byggingu fimm raðhúsa við Axlarás 16 - 22 í Hafnarfirði. Hafnarfjarðarbær úthlutaði félaginu byggingarreit undir raðhúsin á svæði sem ber heitið Ásland 4.

Húsin eru skemmtilega hönnuð á einni hæð og er hvert hús um 150 m². Ístak hefur séð um byggingu húsanna fyrir Búseta og eru það M11 arkitektar sem eiga heiðurinn af hönnuninni.

Framkvæmdum miðar vel og áætluð afhending er í lok júní 2026.

Áslandshverfi

Ásland 4 er nýjasta uppbyggingarsvæðið í Hafnarfirði og þar er einkum að finna lágreistar sérbýlisíbúðir, einbýli, par- og raðhús. Við gerð skipulagsins var lögð áhersla á að hverfið tengist innbyrðis með grænum svæðum eða trjábeltum.

Fréttir

Af framkvæmdum og sölu