Ásland 4

Um nágrennið

Ásland 4

Fjölskylduvænt hverfi

Í Áslandi og næsta nágrenni er góð aðstaða fyrir barnafjölskyldur.

Leikskólar eru staðsettir innan hverfisins bæði í Áslandi og Áslandi 4 og í göngufæri frá flestum íbúðum.

Áslandsskóli er grunnskóli hverfisins og þjónar nemendum í 1.–10. bekk. Skólinn er miðsvæðis í hverfinu og aðgengilegur með stuttum og öruggum gönguleiðum. Einnig er grunnskólar í Hamranesi og Skarðshlíð sem er stutt frá Axlarás.

Víða um hverfið eru leikvellir og opin leiksvæði, auk grasflata og opinna svæða sem nýtast vel til útileikja og samveru.

Allt er vænt sem er grænt

Göngu- og hjólastígar liggja um allt hverfið. Áslandið er tilvalin staðsetning fyrir hestafólk en utt er í hesthúsin við Kaldárselsveg. Hvaleyravatn í bakgarðinum en við það er að finna Höfðaskóg, Paradísalund, vinsælt leiksvæði fyrir börn, Rósasafnið í Hafnarfirði og Skátalund.

Náttúruperlur og útivist

Eitt af því sem gerir Ásland sérstaklega aðlaðandi er nálægðin við fjölbreytta og ósnerta náttúru.

Helgafell er í göngufæri frá hverfinu og býður upp á vinsælar gönguleiðir með fallegu útsýni yfir höfuðborgarsvæðið.

Kaldársel og Heiðmörk eru í stuttri fjarlægð og bjóða upp á fjölbreyttar göngu-, hlaupa- og hjólaleiðir í einstöku hraun- og skógarlandi.

Hraunið og opnu svæðin í kringum hverfið skapa sérstaka stemningu og gera íbúum kleift að njóta náttúrunnar nánast við bæjardyrnar.

Smelltu hér til þess að skoða gönguleiðir um Hvaleyravatn

Smelltu hér til þess að skoða gönguleiðir um Helgafell

Stutt í alla helstu þjónustu

Ásland nýtur góðrar nálægðar við helstu þjónustu.

Verslanir, matvöruverslanir og önnur dagleg þjónusta eru í stuttri akstursfjarlægð, meðal annars í Setbergshverfi og við verslunarkjarna í nágrenninu.

Heilsugæsla, apótek og önnur heilbrigðisþjónusta eru einnig innan seilingar.

Íþróttaaðstaða, líkamsrækt og skipulagt íþróttastarf er í boði í nágrenninu. Íþróttafélagið Haukar er í næsta hverfi ásamt líkamræktarstöðvunum World Class og Kötlu Fitness. Ásvallarlaug er ein stærsta sundmiðstöð landsins en hún býður upp á 50 og 25 metra keppnislaug, 17 metra barnalaug og 10 metra vaðlaug með leikföngum og vinsælli vatnsrennibraut. Fimm heitir pottar, þrír innanhúss og tveir utandyra ásamt gufubaði og köldum pott.

Axlarás er fullkomin staðsetning fyrir golfarana en stutt er í bæði golfklúbbinn Odd og Setberg.

Miðbær Hafnarfjarðar er í nokkurra mínútna akstursfjarlægð með fjölbreyttu úrvali verslana, veitingastaða og menningarviðburða.

Samgöngur eru góðar og stutt er í helstu umferðaræðar til Reykjavíkur og annarra nærliggjandi sveitarfélaga.

Hafnarfjörður

Hafnarfjörður er lifandi og fjölskylduvænt bæjarfélag á höfuðborgarsvæðinu þar sem falleg náttúra og þægileg borgarnálægð fara saman. Bærinn býður upp á fjölbreytt hverfi, góða skóla, öfluga þjónustu og fjölmörg tækifæri til útivistar. Einstakt hraunlandslag, í nálægð við sjóinn og græn svæði skapa notalegt umhverfi til að búa í. Í Hafnarfirði ríkir sterkt samfélag og fjölbreytt menningarlíf sem gerir bæinn að eftirsóknarverðum búsetukosti. Þar getur fólk notið bæði rólegs umhverfis og stuttrar leiðar í alla helstu þjónustu á höfuðborgarsvæðinu.

Mynd frá Hafnarfjarðarbæ