Innan-ibudar-axlaras-3Dmynd

Um húsið

Axlarás 16-22 eru raðhús á einni hæð í Hafnarfirði

Axlarás 16-22

Axlarás 16, 18a, 18b, 20 og 22 eru raðhús á einni hæð. Húsið er úr forsteyptum einingum með sjónsteyptri áferð. Inná baðherbergi eru ljós brúnar flísar frá Harðviðarval og Quick Step harðparket á alrými og svefnherbergjum. Gluggar, úti og svalahurð úr áli og tré. Hvítar innihurðar frá Harðviðarval. Innréttingar eru frá Voke 3 og bakaraofn og helluborð er frá AEG.

Lóðafrágangur er hannaður af M11 arkitektum en hellur eru fyrir framan hús og við svalahurð ásamt grasi og runnum.

Viltu fá fréttir af Axlarás 16-22?

Með því að skrá þig á póstlista Búseta færðu fréttir af framkvæmdum, sölu íbúða og fleiru tengt verkefninu. Smelltu á tengil til að skrá þig á póstlistann.

Svansvottuð raðhús

Axlarás 16-22 verða svansvottuð hús. Svansmerkið er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem tekur til alls lífsferils vöru og þjónustu. Svansvottuð vara er betri fyrir umhverfið og heilsuna. Svansmerkið er áreiðanleg vottun sem 93% Íslendinga þekkja.

Meginmarkmið Svansvottunar er að draga úr umhverfisáhrifum bygginga, sporna við hnattrænni hlýnun og vernda heilsu þeirra sem koma að verkinu á framkvæmdartíma sem og þeirra sem nota bygginguna eftir að hún er tekin í notkun. Kröfurnar ná einnig til gæðastjórnunar á verkstað, en skýr stýring á umhverfisþáttum og gæðastjórnun helst oft í hendur.

Helstu áherslur í viðmiðunum Svansvottaðra bygginga eru:

  • Strangar kröfur um innihald skaðlegra efna í bygginga- og efnavöru
  • Góð innivist tryggð með góðri loftræsingu og dagsbirtuútreikningum
  • Hagkvæma orkunotkun með áherslu á orkusparnað
  • Lækkun kolefnisspors byggingarinnar með efnisvali
  • Tryggja gæðastjórnun í byggingarferlinu
  • Áhersla á hringrásarhagkerfið og flokkun úrgangs

Hverfi í uppbyggingu

Ásland er vinsælt og fjölskylduvænt íbúðahverfi í austurhluta Hafnarfjarðar. Hverfið er með skóla og leikskóla í göngufæri, góða útivistarmöguleika og nálægð við náttúruna. Ásland 4 er nýtt hverfi í suðurhlíðum Ásfjalls.

Megináhersla í Áslandi 4 er á lágreistar sérbýlisíbúðir, einbýli, par- og raðhús auk lítilla fjölbýlishúsa með sérinngöngum og óverulegri sameign. Alls eru um 550 íbúðir, þar af um 200 í einbýlishúsum, um 130 í rað- og parhúsum og um 220 í litlum fjölbýlishúsum. Gert er ráð fyrir 3–4 deilda leikskóla.

Hönnuðir

Byggingaverktaki

Mynd frá Hafnarfjarðarbæ